Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi. Hún var ákærð fyrir að bana dóttur sinni Catherine Mancel á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025 í samverknaði við eiginmann sinn. Hún var ekki ákærð fyrir aðkomu að andláti hans.
Hún sat í gæsluvarðhaldi í tvo mánuði í fyrra og verður sá tími dregin af fangelsisvistinni. Þá er henni gert að greiða rúmar þrettán milljónir króna í lögmannskostnað og um fimm milljónir í annan sakarkostnað.
Mancel ætlar að áfrýja dómnum að sögn verjanda hennar, Ómars Arnar Bjarnþórssonar.
Sagði dótturina hafa viljað deyja
Fjölskyldan var á ferðalagi um Ísland en hún ættuð frá Frakklandi og var búsett á Írlandi. Mancel hefur sagt að fjölskyldan hafi ákveðið að koma til Íslands til að deyja saman.
Hugmyndin hafi kviknað því eiginmaður hennar hafi verið með banvænan sjúkdóm.
Í ákæru var hjónunum gefið að sök að hafa haldið dóttur sinni fastri og brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar í drjúga stund. Af þessu á hún að hafa hlotið punktblæðingar á hálsi og í andliti.
Þá eiga þau einnig að hafa stungið hana tvisvar með hnífi í brjóstkassann þar sem önnur stungan gekk inn að hjartanu.
Mancel hefur haldið því fram að dóttir hennar hafa verið viljugan þátttakanda og að hún hafi viljað deyja fyrst.
Án fordæma
Málið er án fordæma og rannsókn lögreglu hefur teygt sig til fjölda landa. Fjölskyldan var frá Frakklandi en bjó á Írlandi um árabil og fjölskyldufaðirinn var uppalin í Nýju-Kaledóníu. Þá er Ming Ting sjálf ættuð frá Kína.
Ítarlega var fjallað um dularfullan harmleik Mancel-fjölskyldunnar í þættinum Sögur úr raunveruleikanum sem má hlusta á í spilaranum hér að neðan.