Varptíminn er í hámarki við Reykjavíkurtjörn og fyrstu ungarnir að koma úr eggjum. Því er mikilvægt að hætta brauðgjöfum við Tjörnina. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Brauðið laðar að máva sem eiga það til að éta litla unga.
Auk þess er næg fæða í Tjörninni fyrir endurnar og unga þeirra yfir sumarið og því er ekki þörf á að fóðra þær. Brauðgjöf getur valdið ofauðgun í vatni, það getur orðið mjög gruggugt og eituráhrifa gætt í verstu tilfellum. Með haustinu er í lagi að fara aftur að fóðra endurnar en mælst er til þess að fólk forðist brauð og gefi korn, fræ, salatblöð eða elduð hrísgrjón í staðinn.