Breskt par á fimmtugsaldri, þau Angela Lousie Derbyshire og Darren Christopher Rollisson, hafa verið ákærð fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þau eru sökuð um að hafa sunnudaginn 12. apríl 2026 staðið saman að innflutningi á tæplega 32 kílóum af amfetamíni. Þau földu efnin hvort í sinni ferðatöskunni, skipt um það bil til helminga. Parið var að koma með flugi frá Manchester til Keflavíkur. Dómafordæmi gefa til kynna að innflutningur á svo miklu magni af amfetamíni geti leitt til margra ára fangelsisdóms.
Miðaldra breskt par ákært í risastóru amfetamínmáli