„Breyttar aðstæður kalla á stækkun Evrópusambandsins, en stækkunarferlið tekur of langan tíma og þetta veldur ókyrrð meðal umsóknarríkja og ekki síður aðildarríkja.“
Svona hefst bréf sem Friedrich Merz Þýskalandskanslari sendi leiðtogum Evrópusambandsins fyrr í þessari viku. Merz vill höggva á þennan hnút, að minnsta kosti hvað varðar Úkraínu, og bjóða ríkinu eins konar aukaaðild (e. associate membership), þar til hefðbundnu stækkunarferli er lokið. Með þessari aukaaðild fengi Úkraína til dæmis sæti í ráðherraráði og leiðtogaráði ESB, og þingsæti á Evrópuþinginu, án þess þó að hafa atkvæðisrétt.
Merz segir í bréfinu að þessi hugmynd hafi komið upp í samtölum við Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta á óformlegum leiðtogafundi Evrópusambandsins á Kýpur nýlega.
Líta má á tillögu Merz sem tilraun hans (og þýsku stjórnarinnar) til að blása nýju lífi í umræðuna um stækkunarmál - ekki síst um hvernig Evrópusambandið þurfi að hnika þessu ferli til í ljósi gjörbreyttra aðstæðna í alþjóðakerfinu og breyttu umhverfi varnar- og öryggismála í Evrópu.
Hugmyndin um aukaaðild, og einhvers konar sérmeðferð fyrir Úkraínu snýst einnig um mögulegt friðarsamkomulag í Úkraínu; rætt hefur verið um aðild Úkraínu að Evrópusambandinu sem hluta af slíku samkomulagi og ljóst þykir að loforð eða áætlun um aðild yrði nauðsynleg, svo almenningur í Úkraínu gæti fallist á friðarsamkomulag sem gæti mögulega falið sér eftirgjöf á landssvæðum.
Embættismenn og sérfræðingar sem fréttastofa hefur rætt við um þetta segja einnig að það sem vaki fyrir Merz sé að tryggja sem best að Úkraína verði sem fyrst hluti af Evrópusambandinu, óháð þeim tímaramma sem hefðbundið aðildarferli felur í sér.
Merz talar í bréfinu einnig um að veita umsóknarríkjunum á Balkanskaga ákveðin réttindi í aðdraganda aðildar, til dæmis takmarkaðan aðgang að innri markaðnum og stöðu áheyrnarfulltrúa í öllum helstu stofnunum Evrópusambandsins. Leiðtogar Svartfjallalands og Serbíu hafa þegar lagt álíka tillögur fram, en ekki er ljóst hvernig þessi hópur ríkja mun bregðast við hugmyndum Merz um einhvers konar sérmeðferð fyrir Úkraínu.
Breytt afstaða Ungverja
Úkraína sótti um aðild að Evrópusambandinu aðeins nokkrum dögum eftir að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í febrúar 2022. Leiðtogaráðið samþykkti síðan umsóknina í júní það ár. Aðildarviðræður hófust formlega sumarið 2024, en síðan í fyrrasumar hafa stjórnvöld í Ungverjalandi staðið í vegi fyrir því að samingskaflar yrðu opnaðir.
Valdaskiptin í Búdapest í síðasta mánuði, í kjölfar sigurs Tisza-flokksins í þingkosningnum í Ungverjalandi, hafa hins vegar breytt þessari stöðu; Peter Magyar, nýr forsætisráðherra Ungverjalands er áfram um að bæta samskipti ungverska stjórnvalda við Evrópusambandið - ekki síst til að losa um styrki sem frystir voru í valdatíð forvera hans, Viktors Orban - og hluti af þessari stefnubreytingu snýst um afstöðuna til Úkraínu.
Ótvírætt merki um þetta sást á miðvikudaginn, þegar sérfræðingarhópar frá Ungverjalandi og Úkraínu áttu sinn fyrsta fund um stöðu og réttindi ungverskumælandi minnihlutahóps sem býr í vesturhluta Úkraínu; það er mál sem stjórnvöld ríkjanna hafa deilt um í talsverðan tíma, en gæti verið að leysast.
Today, Hungarian–Ukrainian expert consultations began online, which we opened together with Ukrainian Foreign Minister Andrii Sybiha and Deputy Prime Minister of Ukraine Taras Kachka. These consultations are important steps toward rebuilding our bilateral relations and…
— Anita Orban (@_OrbanAnita) May 20, 2026
Samþykki allra aðildarríkja Evrópusambandsins þarf til að opna kafla og kaflahópa í samningaviðræðum við umsóknarríki og þannig gátu Ungverjar staðið í veginum; láti þeir nú af andstöðu sinni, eins og útlit er fyrir, segja viðmælendur fréttastofu hér í Brussel að fyrsti kaflinn gæti verið opnaður í næsta mánuði og jafnvel fimm til viðbótar í júlí.
Gríðarmikil vinna er hins vegar framundan næstu árin fyrir stjórnvöld í Úkraínu að uppfylla skilyrði um inngöngu; ekki síst hvað varðar aðgerðir til að koma í veg fyrir spillingu í stjórnkerfinu; nokkuð sem er og hefur verið landlægt vandamál í Úkraínu.