Mennt er máttur – og lengir lífið
Karlar með háskólagráðu lifa tæplega fjórum árum lengur en þeir sem eru með grunnskólapróf. Thor Aspelund prófessor segir menntun sjálfstæðan þátt sem hefur áhrif á heilsu og langlífi. „Menntun sem slík gerir þig hæfari til þess að takast á við vandamál.“
Ævilengd íslenskra karlmanna með grunnskólamenntun hefur styst um hálft ár síðasta áratug, á meðan konur með háskólamenntun lifa ári lengur en þá. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir þetta ekki séríslenska söðu, heldur sé það þekkt víða og verið til umfjöllunar á Norðurlöndunum að fólk með grunnskólapróf lifi skemur en fólk með háskólamenntun. Það sé áhyggjuefni að bilið sé að breikka. Hann hefur meðal annars rannsakað tengsl á milli menntunarstigs og áhættu á kransæðasjúkdómum, þar sem í ljós kom að fólk með minni menntun er líklegra til að fá hjartaáfall en aðrir sem eru með lengri skólagöngu.
Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að árið 2025 var ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með grunnskólamenntun 52,5 ár á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við því að lifa 48,5 ár til viðbótar. Konur með framhaldsskólamenntun gátu vænst þess að lifa tæplega þremur árum lengur en stallsystur þeirra með …