Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í Reykjanesbæ. Víkurfréttir greina frá þessu.
Hverjir það eru sem munu gegna helstu embættum innan stjórnsýslunnar kemur svo í ljós á morgun þegar flokkarnir skrifa undir samkomulag um meirihlutasamstarf.
Vilhjálmur Árnason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, var kynntur sem bæjarstjóraefni flokksins. Ekki liggur þó fyrir hvort hann taki strax við sem bæjarstjóri.
Nýr meirihluti samanstendur af fimm bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks og einum bæjarfulltrúa Miðflokks. Gunnlaugur Kárason, oddviti Miðflokksins, tekur sæti í bæjarstjórn.