Það er alltaf hægt að gera betur í stuðningi við Úkraínu, segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Friðrik tekur þátt í fundi bandalags hinna viljugu í Kyiv í dag.
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, er í sinni fyrstu heimsókn í Úkraínu. Hann stýrir fundinum ásamt kanslara Þýskalands og forseta Frakklands sem taka þátt í gegnum fjarfundarbúnað.
Það gerir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands einnig. „En ég sit í herberginu til þess að vera með fána Íslands á staðnum,“ segir Friðrik Jónsson sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Hann segir viðvarandi stuðning við landið bera einna hæst á fundinum.
„Vonandi jafnvel að flýta einhverju. Það snýst náttúrulega mikið núna um að reyna að tryggja meiri og betri loftvarnir. Sérstaklega gegn þessum skotflaugum, ballistic skotflaugum, sem eru að valda hvað mestu tjóni hérna núna.“
Alltaf hægt að gera betur
„Og borgaralegt mannfall hér hefur aukist sem hluti af afleiðingum af því hvernig Rússar eru að beita þessu og er alveg sama um fall almennra borgara og beinlínis eru að nota þá aðferðafræði að stunda sem mestan hrylling og sem mest hryðjuverk,“ segir Friðrik.
Friðrik hefur farið í margar heimsóknir til Úkraínu frá því hann varð sendiherra í Póllandi. Hann segir Úkraínumenn enn harða af sér þrátt fyrir fjögur og hálft ár af stríði.
„Þessi þjóð er ekkert að fara að láta buga sig, brjóta eða beygja. En augljóslega er fólk orðið mjög langþreytt og það er svona beigur í fólki útaf þessari auknu notkun á ballistic skotflaugum sem að þeir hafa litlar varnir við.“
Skiptir þar mestu skortur á patriot loftvarnarflaugum sem eru þær einu sem geta grandað skotflaugum Rússa. „Við eigum að halda áfram að sjálfsögðu eins og við höfum verið að gera að styðja við þessa þjóð í þeirra varnarbaráttu og þar má alltaf gera betur,“ segir Friðrik.