Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.
Hildur Líf varð fræg á einni nóttu þegar hún hélt hið margfræga VIP-partí á Replay ásamt vinkonu sinni. Árið 2011 kom hún í tískuviðtal á Smartlandi og sagði hún frá því að hún spáði mikið í útliti. Þar kom fram að hún lifði heilsusamlegu lífi.
Ferðu í ljós?
„Nei. Mér finnst gaman að vera tönuð og til þess að verða það fer ég í brúnkusprautun.“
Bestu fatakaupin?
„Bleikur prinsessukjóll og skórnir sem ég keypti í dag.“
Í dag býr Hildur Líf í Arizona í Bandaríkjunum og er að ná áttum eftir erfiðan skilanð.
