Samfélagsrýnirinn Máni Pétursson segir hlaðvarpara á hægri vængnum meðvirka með Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að umbótum á starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi.
Til stendur að breyta lögum um fjölmiðla þannig að hlaðvörp þurfa ekki lengur að skrá sig sem fjölmiðil. Þetta kemur fram í svari menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis.
Nokkur hlaðvörp, þar á meðal Ein Pæling með Þórarni Hjartarsyni og Komið gott með Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur, hafa kvartað yfir því að þurfa að skrá sig sem fjölmiðla hjá Fjölmiðlanefnd. Hugtakið fjölmiðill er frekar loðið í núverandi lögum, samkvæmt nefndinni er þarf efni sem er miðlað þarf að lúta ritstjórn, vera miðlað reglulega til almennings og tilgangurinn þarf að vera að upplýsa, fræða eða skemmta, þar að auki þarf að vera fjárhagslegur ávinningur af starfseminni sem þýðir að vefsíður stofnana, samtaka og fyrirtækja sem birta reglulega fréttir eru undanþegnar því að skrá sig sem fjölmiðil.
Máni kveður hvasst að orði í færslu á Facebook: „Flest hlaðvörp í dag eru með einhverjum sjálfumglöðum hægri sinnuðum hælasokkum. Ég vona nú að eitthvað af þeim sjái nú sóma sinn í því að benda á þá staðreynd að tvisvar sinnum hefur verið tekið á RÚV á auglýsingamarkaði í bæði skiptin var þar á ferð vinstri ráðherra og Sjálfstæðisflokkurinn ekki í ríkisstjórn og nú þetta.“
Í stjórnmálum eigi að telja það sem er gert, ekki það sem er sagt. „Í Sjálfstæðisflokki er fullt af fínu fólki sem hefur örugglega góðar hugsanir en þessi meðvirkni flokksmanna og fjölmiðla/hlaðvarpstjórnenda með flokknum hefur ekki gert samfélaginu neinn greiða.“
Hvort sem fólk sé til vinstri eða hægri þá þurfi hér fyrst og síðast góða hægri og vinstriflokka. „Við höfum hvorugt. Það er hlutverk fjórða valdsins að veita þessum öflum aðhald. Það hefur algerlega brugðist.“
„Ég er trúður með míkrófón sem ég keypti sjálf“
Ólöf Skaftadóttir spyr Mána hvernig þetta tengist í hans huga. „Ég er sannarlega sjálfumglöð og hælasokkur en Ríkisútvarpið kemur mér bara ekkert við og á ekkert skylt við hlaðvarpið mitt þar sem ég rausa fyrst og fremst um minn hversdag og blástur þingkvenna.“
Máni svarar að þetta tengist frelsi og almennu viðskiptasiðferði. „Bæði er partur af frelsi sem er mikið notað orð en lítið um gjörðir þegar kemur að íslenska hægrinu. Þá er ég ekki að segja að það sé betra hjá vinstrinu bara hversu fucking lélegt er þetta hjá hinu íslenska hægri.“
Ólöf segir að það kunni vel að vera en það sé engin tenging við skráningu hlaðvarpa hjá Fjölmiðlanefnd.
„Ég hef hvorki ráðherradóm á CV-inu né feril á RÚV og starfa ekki á fjölmiðli. Ég er trúður með míkrófón sem ég keypti sjálf.“
Máni segir að nú losni hún við Fjölmiðlanefnd. „Sem er óþolandi og tilgangslaust batterí. Hitt var bara ég að brýna til góðra verka.“