Margrét Friðriksdóttir hefur ákveðið að draga til baka stefnu gegn Icelandair eftir að hún og flugfélagið komust að samkomulagi. Frá þessu greinir Margrét á Facebook:
„Yfirlýsing vegna Icelandair málsins.
Kæru vinir, mér er ljúft og skylt að tilkynna það að ég hef náð samningum við Icelandair og málið endaði á farsælan hátt. Ég hef því ákveðið að draga stefnuna gegn félaginu til baka, og verður því Landsréttarmálið fellt niður og er hér með lokið. Óska Icelandair velfarnaðar í framtíðinni.“
Hafði Margrét höfðað skaðabótamál gegn félaginu eftir að henni var vísað úr flugvél á Keflavíkurflugvelli árið 2022 eftir að hún neitaði að fara eftir grímuskyldu og sökum ágreinings um hvort taska sem Margrét var með för teldist handfarangur eða ekki. Margrét taldi töskuna vel komast fyrir í handfarangursgeymslu og þvertók fyrir að hafa brotið gegn grímuskyldu. Krafðist Margrét 20 milljóna í miskabætur fyrir atvikið.
Icelandair var sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en Margrét ákvað að áfrýja málinu til Landsréttar.
Sjá einnig:Magga Frikka laut í gras fyrir Icelandair