Við sjáum einnig glænýja könnun Maskínu á fylgi flokkanna á landsvísu auk þess sem við ræðum við seðlabankastjóra um stýrivaxtahækkun. Þá mætir formaður VR í viðtal í beinni og ræðir meðal annars ummæli seðlabankastjóra um að launahækkanir séu ekki líklegar til þess að bæta hag fólks að sinni.
Við hittum auk þess Hildi Björnsdóttur sem átti í dag samtal við oddvita Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknar um mögulega meirihlutamyndun í Reykjavík og fylgjumst með á Alþingi þegar umræða um Evrópusambandið hófst á ný.
Við sjáum einnig myndir frá Danmörku þar sem skjálfti reið yfir í dag og verðum í beinni í sólinni.
Í Sportinu hittum við þrjá ættliði sem hafa orðið Íslandsmeistarar með Njarðvík og í Íslandi í dag skoðar Vala Matt sterk og falleg blóm fyrir íslenska sumarið.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Bylgjunnar, Vísis og Sýnar klukkan 18:30.