Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú manns sem samkvæmt tilkynningu á að hafa elt unga stúlku að skólalóð í Hafnarfirði fyrr í dag. Grunur leikur á að maðurinn hafi verið vopnaður hnífi.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að umfangsmikil leit hafi staðið yfir í dag, en maðurinn hafi enn ekki fundist þegar þetta er skrifað.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við leitina.
Lögregla segir málið nú til skoðunar en ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Ekki liggur fyrir hvort stúlkan hafi orðið fyrir frekara áreiti eða hvort maðurinn hafi haft í hótunum, en atvikið hefur engu að síður verið metið það alvarlegt að sérsveit hafi verið kölluð út.