Einn maður er í haldi lögreglu vegna rannsóknar á bruna í kjallara á Laugavegi 16 sem hýsir Hótel Skjaldbreið og fataverslunina Andrá.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tvær líkamsárásir í miðborg Reykjavíkur eru til rannsóknar hjá lögreglu eftir nóttina. Í dagbókinni segir að hvorug hafi talist meiri háttar.
Einnig rannsakar lögregla þjófnað í verslun þar sem ekki tókst að leysa málið á vettvangi. Ölvaður maður var til vandræða á hóteli í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. Hann neitaði að fylgja tilmælum lögreglu og verður því kærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.