Lögreglan í Skotlandi hefur staðfest að lík sem fannst við austurströnd landsins sé af manni sem féll útbyrðis af skemmtiferðaskipi. Skipið hafði verið við Íslandsstrendur að fylgjast með sólmyrkvanum þann 12. ágúst.Breska blaðið The Sun greinir frá þessu.Lögreglan í Skotlandi greinir frá því að lík sem fannst um 65 frá bænum Anstruther á austurströnd landsins sé af manni sem féll útbyrðis af skemmtiferðaskipinu Ambition. Umfangsmikil leit hafði staðið yfir.
Maður féll útbyrðis og drukknaði á heimleið frá Íslandi – „Svo dapurlegur endir á því sem hefur verið frábær skemmtiferð“