Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið í Stuðlagil. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar upplýsingafulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
„Við erum að bregðast við tilkynningu um að einstaklingur hafi farið í ána,“ segir Jón Þór. Útkallið hafi borist skömmu eftir klukkan 13:00.
„Allar björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út á hæsta forgangi.“
Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.