Lyklavöld að nýju bókasafni Hafnarfjarðar sem enn er bókalaust afhent með viðhöfn rétt fyrir kosningar - „Sérstakt og tímasetningin mjög sérstök“ - „Þetta var ekki sett svona upp“ - DV

Lyklavöld að nýju bókasafni Hafnarfjarðar sem enn er bókalaust afhent með viðhöfn rétt fyrir kosningar - „Sérstakt og tímasetningin mjög sérstök“ - „Þetta var ekki sett svona upp“ - DV

Lyklavöld að nýju bókasafni Hafnarfjarðar sem enn er bókalaust afhent með viðhöfn rétt fyrir kosningar - „Sérstakt og tímasetningin mjög sérstök“ - „Þetta var ekki sett svona upp“ - DV

Fyrr í kvöld var Hafnarfjarðarbæ með formlegum og táknrænum hætti afhent lyklavöldin að nýju húsnæði bókasafns bæjarins í verslanamiðstöðinnni Firði og var afhendingin hluti af viðburði með meðal annars tónlistarflutningi. Framkvæmdir við nýja bókasafnið hafa tafist og kostnaður við þær er kominn fram úr áætlun. Bókasafnið er hins vegar ekki tilbúið til notkunar og nýja bókasafnið er því enn án nokkurra bóka og í raun alveg tómt. Fulltrúi úr minnihluta í bæjarstjórn segir það óneitanlega sérstakt að blása til slíks viðburðar vegna bókasafns sem sé enn tómt og að þetta líti þannig út að þetta hafi fyrst og fremst verið gert vegna þess að kosningar eru í nánd. Bæjarstjórinn segir frumkvæðið að viðburðinum hins vegar hafa komið frá Firði og raunar hafi bærinn fyrst átt að fá húsnæðið afhent fyrir tveimur mánuðum en vegna tafa sem hafi orðið sé afhendingin ekki fyrr en núna. Hann segir um látlausa athöfn að ræða sem snúist aðeins um að afhenda bænum húsnæðið svo að hægt sé að innrétta það fyrir bókasafnið og flytja það þangað úr því húsnæði sem það mun nú yfirgefa.

Bókasafn Hafnarfjarðar hefur verið á Strandgötu 1, skamman spöl frá Firði, í fjölda ára en bærinn hefur selt það húsnæði til Verkalýðsfélagsins Hlífar. Bókasafnið mun loka þann 18. maí og reiknað er með að það muni opna í nýja húsnæðinu í júlí næstkomandi.

Verkalýðsfélag með stórtæk áform í miðbæ Hafnarfjarðar – Kaupa tvö hús, eina lóð og leysa úr erfiðum hnút

Á annan milljarð

Nýja bókasafnið verður á 2. hæð Fjarðar og er 1.733 fermetrar en þar af eru um 500 fermetrar nýbyggðir.

Fyrir húsnæðið greiðir bærinn samkvæmt kaupsamningi við Fjörð ehf., eiganda Fjarðar, um 1,1 milljarð króna og átti sú upphæð að taka breytingum miðað við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar. Samkvæmt minnisblaði sem lagt var fyrir fund bæjarráðs í gær hefur um 1 og hálf milljón króna bæst við kaupverðið vegna hækkunar vísitölunnar.

Samkvæmt minnisblaðinu mun bærinn ráðast í ýmsar framkvæmdir við bókasafnið.

Bærinn mun greiða um 22 milljónir króna fyrir meðal annars baðherbergi lagfæringu og parketlögn

Bærinn greiddi einnig 15,9 milljónir fyrir sinn hlut í hönnun safnsins og alls mun það kosta bæinn 42,8 milljónir króna að innrétta bókasafnið með t.d. húsgögnum og hillum.

Því bætist um 80 milljóna króna framkvæmdakostnaður við kaupverðið sem bærinn greiðir. Miðað við minnisblaðið bætast einnig við 50,2 milljónir vegna glerveggja við rúllustiga, breytta milliveggi frá skilalýsingu og tæki í eldhúsinnréttingu en miðað við minnisblaðið greiðir Fjörður ehf síðasttöldu upphæðina.

Fram kemur í minnisblaðinu að sé þessum framkvæmdakostnaði bætt við kaupverðið sé heildartalan komin upp í 1,3 milljarða króna sem sé sem mjög svipað og áætlun gerði ráð fyrir. Það liggur fyrir að kostnaðurinn sé kominn fram úr áætlun en það er ekki tekið fram í minnisblaðinu hver hin upprunalega áætlun var og því örðugt að átta sig á hve framúrkeyrslan sé mikil en miðað við þetta hefur nýja bókasafnið kostað bæinn  að minnsta kosti um 80 milljónir króna til viðbótar við kaupverðið en væntanlega hefur verið gert ráð fyrir að eitthvað myndi kosta að innrétta bókasafnið.

Ekki að frumkvæði bæjarins

Fyrr í kvöld afhenti Fjörður ehf. Valdimar Víðissyni bæjarstjóra Hafnarfjarðar, fyrir hönd bæjarins, lyklavöldin að nýja bókasafninu. Lykillinn í formi gagnalykils en á nýja safninu á meðal annars að leggja aukna áherslu á stafræna miðlun. Lykillinn var afhentur klukkan 18:45 en á vefsíðu Hafnarfjarðarbæjar var afhendingin kynnt og bætt við að opið verði til 21:00 og Bylgjan verði á staðnum. Fyrstu 100 gestirnir hafi fengið gjafapoka frá kl. 18. Tilboð sé í verslunum og vörukynningar og boðið var upp á skemmtiatriði með Bjarni Ara, Elvis Presley eftirhermu og Maríu og Sjonna.

Valdimar sagði í samtali við DV fyrir afhendinguna að verið væri að afhenda bænum húsnæðið til að hægt sé að koma bókasafninu þar á laggirnar, með því að leggja parket á gólfið og innrétta það. Fjörður hafi verið með lengri opnunardag og forsvarsmenn hans ákveðið að afhenda bænum lyklavöldin með þessum hætti við þetta tækifæri. Hann muni taka við lyklinum fyrir hönd bæjarins og afhenda hann áfram til forstöðumanns bókasafnsins.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Mynd: Skjáskot/Youtube

Bókasafnið nýja er eins og áður segir ekki tilbúið til notkunar, þar eru t.d. engar bækur í hillum og reiknað er með að það opni í júlí næstkomandi. Það virðist því skjóta eiltíð skökku við að blása til slíkrar afhendingar tveimur mánuðum áður en safnið tekur til starfa á nýjum stað. Valdimar segir að Fjörður hafi stungið upp á deginum í dag til afhendingarinnar. Upphaflega hafi bærinn átt að fá húsnæðið afhent í byrjun maí og þar áður raunar í byrjun mars. Það hafi síðan verið hugmynd forsvarsmanna Fjarðar að afhenda lyklavöldinn í dag á þessum lengri opnunardegi en venjulega í verslanamiðstöðinni en í því samhengi ber að minnast að frídagur er á morgun.

Kosningar

Á laugardaginn verður blásið til sveitarstjórnarkosninga og Valdimar segist skilja það að það geti litið þannig út að ákveðið hafi verið að blása til afhendingarinnar með þessum hætti fyrst og fremst vegna kosninganna en hann er í oddvitasætinu á lista Framsóknarflokksins:

„Ég skil alveg hvað þú meinar,“ segir Valdimar en leggur áherslu á að þar sem hafi legið fyrir að Fjörður gæti loks afhent húsnæðið nú um miðjan maí hafi frumkvæðið að því hvernig hún skyldi fara fram komið þaðan. Það sé ekki verið að opna bókasafnið formlega heldur afhenda húsnæðið og leyfa síðan bæjarbúum að skoða það. Hann þvertekur fyrir að hann eða einhver annar hjá bænum hafi sérstaklega haft frumkvæði að því blása til afhendingarinnar svo skömmu fyrir kosningar:

„Alls ekki. Þetta var ekki sett svona upp við áttum að fá þetta eins og ég sagði fyrst í byrjun í mars, svo í byrjun maí og svo seinkaði því fram í miðjan maí.“

Valdimar ítrekar að það hafi verið hugmynd Fjarðar að nýta daginn í dag, sem sé með lengri opnunartíma en venjulega vegna uppstigningardags á morgun, til að afhenda bænum húsnæðið með þessum hætti. Hann bætir því við að samið hafi verið um þennan dag á milli starfsfólks bæjarins og Fjarðar, eftir uppástungu forsvarsmanna Fjarðar, og hann sjálfur ekki komið nálægt því að ákveða dagsetningu afhendingarinnar.

Menningarhús

Valdimar segir kostnaðinn við nýja bókasafnið hafa farið fram úr áætlun meðal annars vegna öryggisatriða sem hafi þurft að bæta við, til að mynda glerinu í rúllustiga en framúrkeyrslan sé ekki það mikil að hún geti ekki talist vera innan eðlilegra marka. Hann segir að þegar komi loks að opnun nýja bókasafnsins verði hún mun veglegri en afhendingin nú í kvöld sem sé tiltölulega látlaus.

Það á síðan eftir að koma í ljós hver verður orðinn bæjarstjóri í Hafnarfirði þegar safnið verður opnað í sumar. Valdimar líst mjög vel á hvernig nýja safnið verður. Hann segir að það verði með glæsilegri bókasöfnum landsins og verði í raun meira eins og menningarhús en í nýja safninu verður lögð aukin áhersla á til að mynda viðburði, margmiðlun og að nýja safnið nýtist fyrir fólk til að koma saman. Þarna verði ekki eingöngu bækur:

„Þetta er svona erlendis eins og Björgvin Halldórsson sagði þegar var eitthvað fínt.“

Einkennileg tímasetning

Árni Rúnar Þorvaldsson er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og annar af fulltrúum flokksins í bæjarráði. Í bókun á bæjarráðsfundi sögðu fulltrúar flokksins um þau gögn sem lögð voru fram um framkvæmdirnar á fundinum:

„Þau staðfesta umtalsverðan kostnað við framkvæmdina og að verkið sjálft er á eftir áætlun í tíma, og mun bókasafnið á nýjum stað í Firði ekki opna fyrr en síðar í sumar. Þrátt fyrir það er blásið til „opnunarhátíðar “ í Firði þremur dögum fyrir kosningar í framtíðarhúsnæði bókasafnsins. Þar verða engar bækur, engin starfsemi, en uppgert húsnæði.“

Árni Rúnar Þorvaldsson. Mynd: Samfylkingin.

Árni Rúnar, sem er í 3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í kosningunum á laugardaginn, í segir í samtali við DV að honum finnist það óneitanlega sérstakt að blása til slíks viðburðar svo skömmu fyrir kosningar:

„Þetta er fyrst og fremst sérstakt og tímasetningin mjög sérstök. Þremur dögum fyrir kosningar að vera blása til svona viðburðar með bókasafn þar sem engar bækur eru komnar. Bókasafn með engum bókum, mjög sérstakt. Þetta lyktar af því að verið sé að gera þetta til að búa til fréttir fyrir kosningar.“

Fréttamaður upplýsti Árna Rúnar um þau svör Valdimars að frumkvæðið að því að afhenda lyklavöldin með þessum hætti í dag, hefði komið frá Firði. Árni Rúnar segistist ekki hafa heyrt þær skýringar fyrr og minnist þess ekki að þær hafi verið ræddar á fundi bæjarráðs, þar sem Samfylkingin gagnrýndi eins og áður segir tímasetninguna með bókun. Hann var þó ekki tilbúinn til að fullyrða að það hefði ekki verið nefnt á fundinum hvaðan frumkvæðið að þessum viðburði hefði komið en ítrekaði að það væri sérstakt að blása til svona viðburðar rétt fyrir kosningar vegna bókasafns þar sem ekkert væri klárt. Þær tafir sem hafi orðið á framkvæmdunum og að sú staðreynd þær hafi farið fram úr kostnaðaráætlun varpi einnig óneitanlega sérstöku ljósi á viðburðinn.

Árna Rúnari líst hins vegar vel á hvernig safnið á að vera og eru hann og Valdimar því að minnsta kosti sammála um það:

„Það verður skemmtilegt og til mikilla bóta fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar. Það er ekki nokkur spurning,“ sagði Árni Rúnar að lokum.

 

#bókasafni #hafnarfjarðar #lyklavöld #nýju #sem


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/13/lyklavold-ad-nyju-bokasafni-hafnarfjardar-sem-enn-er-bokalaust-afhent-med-vidhofn-rett-fyrir-kosningar-serstakt-og-timasetningin-mjog-serstok-thetta-var-ekki-sett-svona/

📰 Aðrar fréttir

„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
Foreldrar skólabarna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla segja tímaspursmál hvenær slys verður þegar skólabíll ekur með börn þeirra um Kambanesskriður...
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
📅 02.10.2026 👁️ 0
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Hnífsdals og Ísafjarðar, hefur verið opnaður á ný. Frá þessu greinir lögreglan á Vesturlandi.Aurskriða féll á veginn fyrr...
Two men charged with terrorism offences in Manchester
📅 02.10.2026 👁️ 0
Two men charged with terrorism offences in Manchester
The pair were arrested in the Northern Quarter area of the city on the eve of Yom Kippur.
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón heldur áfram að vekja líflegar umræður, en eins og greint hefur verið frá stendur til að hækka hann úr 11%...
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
📅 02.10.2026 👁️ 0
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra segir að það sé eftirsjá að Herði Arnarsyni fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Ekkert sé hæ...
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
📅 02.10.2026 👁️ 0
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga i...
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
📅 02.10.2026 👁️ 0
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
One person has died and several others have been injured following a serious accident involving an overturned lorry and numerous vehicles on the TF-5 ...
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
📅 02.10.2026 👁️ 0
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni, stutt innan við Grindavíkurafleggjara. Viðbragð á vegum Brunavarna Suðurnesja er á leið á vettvang e...
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
Reikningar hrönnuðust inn á heimabanka íbúa og einn íbúi sem Vísir ræddi við fékk rukkanir upp á tæplega hálfa milljón króna samtals, meðal annars fyr...
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
📅 02.10.2026 👁️ 0
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
Hér má horfa á beina útsendingu frá söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfells...
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
📅 02.10.2026 👁️ 0
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
As of Thursday night, Pike remained critically ill and is being treated at a hospital in Nashville, Tennessee.
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsu...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 1
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 1
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 1
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 1
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 1
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 1
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni
Hverjir búa hér 2050? – Mannfjöldaspá Íslands eftir bakgrunni Fréttin2. október 2026Aðsend grein, InnlentLeave a Comment Mynd úr safni. Mannfjöldaspá ...
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um þriðjungur netverslunar kemur frá Kína
Verslun á netinu hefur færst mjög í aukana hérlendis síðastliðin ár.„Það hefur verið mjög mikil aukning. Við fórum úr 23 milljörðum árið 2022 og sjáum...
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fag­fé­lögin kalla eftir heimild til að slíta kjara­samningum - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu þeirra þar sem þau fordæma viðbragðsleysi Samtaka atvinnulífsins við stöðunni.  „Tilefni fundarins er sú st...
Riot police clash with students as education protests rage in France
📅 02.10.2026 👁️ 2
Riot police clash with students as education protests rage in France
More than 600 schools have faced disruption as protests over standards and lack of teachers continue.
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Setja 100 milljónir tunna á markað til að lækka olíuverð
Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að setja 100 milljónir tunna af olíu á markað til að stuðla að lækkun heimsmarkaðsverð á olíu.Greint var frá þessu ...
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða Björg komin í veikindaleyfi
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, er komin í veikindaleyfi.Þetta kemur fram í fundargerð forsæti...
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
📅 02.10.2026 👁️ 2
Yfir tvö þúsund handteknir í mótmælum nemenda
Það er víða eldfimt í Frakklandi, jafnvel í orðsins fyllstu merkingu. Eldar hafa logað nokkuð víða um landið í dag í mótmælum sem framhaldsskólanemar ...
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
📅 02.10.2026 👁️ 2
Woman at centre of Cornell rape inquiry 'failed' by officials, says New York governor
The woman, known as Jane Doe, alleges she was raped by seven students at a fraternity house at the university in 2024.
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
📅 02.10.2026 👁️ 1
Alison Hammond has heart check-up in hospital after rushing off This Morning while on air
The host says she is "fine" but getting checked after leaving midway through Friday's This Morning.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
📅 02.10.2026 👁️ 1
Intensified Russian strikes are tearing Kyiv apart, Klitschko warns
Vitaliy Klitschko says Ukraine's capital is in a "very dramatic situation" as Russia hits critical infrastructure.
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 2
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 2
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
📅 02.10.2026 👁️ 1
Spanish PM Sánchez loses key housing crisis vote after eviction of woman, 87
The defeat raises pressure on Sánchez to call a snap election, after a series of scandals affecting his party and allies.