Lundum á norsku eyjunni Røst hefur fækkað um fimmtung á einu ári. Tveir þriðju sjófuglategunda í Noregi eru á válista.
Fyrir tæpum fimmtíu árum síðan, 1979, urpu um 1,4 milljónir lundapara á eyjunni Røst, yst á Lófóten í Noregi. Í ár eru pörin aðeins 165 þúsund og 88% stofnsins er horfinn.
88% lundastofns eyjunnar horfinn
Røst er þekkt fyrir stóra lundabyggð. Hnignun lundastofnsins hefur verið sérlega mikil að undanförnu og varppörum hefur fækkað um fimmtung á einu ári.
Vísindamenn segja fækkunina óvenju mikla og vísa til fæðuskorts sem einnar helstu ástæðu hennar. Síld, sem áður var mikilvægasta fæða lunda á þessum slóðum, hefur fært sig norðar og er nú nánast horfin úr fæðu fuglanna.
Þeir þurfa því að fljúga langar vegalengdir út á haf til að afla sér fæðu, sem útheimtir mikla orku. Það hefur meðal annars þær afleiðingar að ungarnir vaxa hægar.
Binda vonir við breyttar horfur eftir sumarið
Samkvæmt sérfræðingum gæti sumarið reynst lundunum betur. Voni eru bundnar við að minnst helmingur lundaparanna nái að koma unga á legg í ár.
Þeir hafa þó bent á að vandinn nái langt út fyrir lundastofninn. Tvær af hverjum þremur sjófuglategundum í Noregi eru komnar á válista, meðal annars vegna loftslagsbreytinga, ofveiði, mengunar, meðafla og sjúkdóma — sem ógna tilvist þeirra.