A-listi, A- fyrir alla fékk 41,9 prósent atkvæða. Listinn fær því tvo sveitarstjórnarfulltrúa. Það er sami fjöldi og í kosningum 2022 en þá fékk A-listinn tvo menn kjörna en B-listi Framsóknar og óháðra fékk þá þrjá menn kjörna.
Alls greiddu 417 atkvæði af 666 kjósendum á kjörskrá. Gildir atkvæðaseðlar voru 406 en auðir og ógildir voru ellefu talsins. Björn Þór Ólafsson, Þórey Richardt Úlfarsdóttir og Daníel Óliver Sveinsson náðu kjöri fyrir Z-lista. Anna Huld Óskarsdóttir og Salóme Svandís Þórhildardóttir náðu kjöri fyrir A-lista.