Von er á talsverðri umferð víða um land um hvítasunnuhelgina. Hvalfjarðargöngin verða opin fram á sunnudagskvöld en þá verður þeim lokað frá klukkan 21:30 til 06:00 – líkt og gert hefur verið undanfarnar vikur vegna framkvæmda.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, biður vegfarendur um að sýna aðgát og þolinmæði á vegum. Hann er bjartsýnn á að framkvæmdunum ljúki á tilætluðum tíma.
„Í Hvalfjarðargöngunum gengur þetta bara mjög vel og er allt á áætlun. Við miðum við að klára 29. maí og það lítur út fyrir að það standi,“ segir G. Pétur.
„Það má líka benda á að í fyrramálið er verið að fræsa hvinrendur í nýja malbikið hjá Hólmsá. Það á ekki að valda miklum töfum en þar þurfa menn líka að sýna aðeins þolinmæði.“
Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir einhverja umferð þegar hafa myndast á vegum. Hann bendir ökumönnum á að hafa augun opin fyrir umferð bæði mótorhjóla og reiðhjóla á vegum um helgina. Þá sé brýnt að ökumenn bíla virði viðmið um að einn og hálfur metri sé á milli ökutækja og hjóla.