Nýlega felldi atvinnuvegaráðuneytið úr gildi ákvörðun lögreglustjórans í Vestmannaeyjum um að svipta dyravörð nokkurn starfsleyfi sínu. Vísaði lögreglustjórinn til þess að dyravörðurinn væri til rannsóknar hjá embættinu vegna gruns um líkamsárás, sem hann var síðar ákærður fyrir. Ráðuneytið segir hins vegar sviptinguna ekki hafa byggt á neinum lagalegum grundvelli og hafi ekki verið í samræmi við þá grundvallarreglu að allir sem sakaðir séu um refsiverða háttsemi teljist saklausir uns sekt sé sönnuð.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum braut á rétti dyravarðar