Gunnar Axel Davíðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að engin af þeim 16 kínversku konum sem lögreglan ræddi við eftir að upp komst um skipulagða vændisstarfsemi á tveimur stöðum í Reykjavík og Kópavogi hafi þegið þá aðstoð sem þeim bauðst.
Að sögn Gunnars Axels á það sama við um aðrar erlendar konur sem lögreglan hefur rætt við í tengslum við vændi hér á landi frá því byrjað var að bjóða þeim sérstaka aðstoð.
Líkt og greint var frá fyrr í dag telur lögreglan að kínversk skipulögð brotasamtök kunni að standa að baki starfseminni. Enginn þeirra sem taldir eru bera ábyrgð á henni var þó handtekinn hér á landi.
Segir þetta vekja spurningar
„Konurnar vildu ekki þiggja þá aðstoð sem þeim bauðst, ekki frekar en fyrri ár,“ segir Gunnar Axel.
Hann segir lögreglumenn hugsi yfir því að enginn hafi þegið aðstoðina
„Okkur finnst það skrýtið.“
Er það þá hræðsla sem kemur í veg fyrir það?
„Það er það eina sem maður getur ímyndað sér.“
Samkvæmt Gunnari Axel hafa kínverskar konur verið í vændi hér á landi frá árinu 2024.
„Okkur grunar að skipulagður hópur standi að baki þessu því þær dvelja hér um tíma, fara síðan úr landi og nýjar koma í þeirra stað,“ segir hann.
Meiri áhersla á kaupendur
Fimm menn voru handteknir í aðgerð lögreglunnar sem beindist að vændisstarfseminni. Auk þess hefur lögreglan undir höndum myndefni af um 50 einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa keypt vændi.
„Við höfum lagt meiri áherslu á að hafa uppi á kaupendum og handtaka þá en áður,“ segir Gunnar Axel.