Lögreglan staðfestir andlát í Leifsstöð

Keflavíkurflugvöllur
Mynd: Stjórnarráðið
Erlendur ríkisborgari lést í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt 24. ágúst síðastliðins.
Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir andlátið og segir ekkert benda til þess að það hafi borið að með saknæmum hætti.
Rannsókn málsins er þó enn í gangi og að sögn lögreglu verða ekki veittar frekari upplýsingar um málsatvik að svo stöddu.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.