Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook er Arnór 37 ára, með ljóst, þunnt hár, í kringum 175 cm á hæð og meðalmaður í vexti. Hann er klæddur í dökkbláa þunna úlpu, dökkbláar gallabuxur og svarta strigaskó.
Það er líklegt að hann sé gangandi, hann gæti verið á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga og á svæðinu að og á Akranesi.
Ef einhverjir hafa vitneskju um ferðir Arnórs eru vinsamlegast beðnir að hafa samband strax við lögreglu í síma 112.