Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni. Síðast sást til Arnórs við KFC í Mosfellsbæ um klukkan 18 í dag.
Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook er Arnór 37 ára, með ljóst, þunnt hár, í kringum 175 cm á hæð og meðalmaður í vexti. Hann er klæddur í dökkbláa þunna úlpu, dökkbláar gallabuxur og svarta strigaskó.
Líklegt sé að hann sé gangandi og hann geti verið á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga og á svæðinu að og á Akranesi.
Þeir sem hafa vitneskju um ferðir Arnórs eru beðnir um að hafa samband strax við lögreglu í síma 112.