Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt uppfærða tilkynningu um minkamálið í Mosfellsdal. Mörg hundruð minkum var sleppt úr búrum frá Dalsbúi í nótt samkvæmt öðrum heimildum, en lögregla segir hins vegar ekki fyllilega ljóst hvað gerðist. Lögregla greinir frá því í uppfærðri tilkynningu að við föngun minkanna í dag verði beitt skotvopnum í Mosfellsdal. „Viðbúið er að íbúar og vegfarendur á svæðinu heyri skothvelli vegna þessa,“ segir í tilkynningunni.
Lögregla varar við skothvellum í Mosfellsdal