Nýja vatnslögnin kom í land í Vestmannaeyjum í nótt. Það tekur þó nokkurn tíma að kanna hvort hún geti sinnt hlutverki sínu eftir að skemmdir urðu á henni síðustu helgi.
„Við búumst við því að það taki svona tvær vikur að klára það sem þarf að gera til þess að hægt sé að prófa það og þrýstiprófa hana, sjá hvort hún geti flutt eitthvert vatn, segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Lagningaskipið Subsea 7 yfirgaf Vestmannaeyjar um hálf fjögur í nótt og sáu þá aðrir verktakar um að koma henni í land.
Fyrirtækið Subsea 7 hefur umsjón með verkefninu og hófst það 4. ágúst. Lögnin varð fyrir skemmdum síðustu helgi á meðan unnið var að útlagningu hennar.
Vestmannaeyjabær ákvað í samráði við fyrirtækið að klára að leggja vatnslögnina svo hægt verði að nýta hana að einhverju marki. Ekki liggur enn fyrir hversu miklar skemmdir urðu á lögninni. Hvorki fyrirtækið né sveitarfélagið vilja gefa upp hvað nákvæmlega kom fyrir lögnina. Unnin var forskýrsla um atvikið sem Íris segist þó ekki geta tjáð sig um. Bíða verði eftir endanlegri greiningu.
„Það fáum við bara að vita í þessari lokaskýrslu sem á líklega að koma eftir tvær vikur líka,“ segir hún.
Nýja lögnin er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn varð fyrir skemmdum eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023. Íris hefur áður sagt að kostnaður vegna skemmda í nýju lögninni falli ekki á Vestmannaeyjabæ.