Erlendir fjölmiðlar segja að yfirlýsing Hickerson hafi verið send frá Sloan Ellis, lögmanni Hickerson. „Andlát Hayden er enn til rannsóknar og það er mikilvægt að rannsóknin fái að hafa sinn gang,“ segir Ellis að því er segir í frétt TMZ.
Hickerson var staddur í íbúðinni í Greenville í Suður-Karólínu þegar hin 36 ára Panettiere fannst látin, að því er segir í lögregluskýrslum.
„Eins og greint hefur verið frá opinberlega þá hefur lögregla staðfest að ekki sé grunur um að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað,“ segir Ellis.
Tjáir sig ekki frekar
Lögmaðurinn vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. „Af virðingu við nánustu aðstandendur Hayden og yfirstandandi rannsókn verða ekki gefnar frekari yfirlýsingar að svo stöddu.“
Bandarískir fjölmiðlar hafa áður greint frá því að Brian Hickerson og bróðir hans Zach hafi verið staddir í íbúðinni þegar lögregla kom að Panettiere látinni. Þá á að hafa fundist poki með lyfjum sem Panettiere á að hafa neytt, en bandaríska fíkniefnalögreglan (DEA) kemur einnig að rannsókn málsins.
Panettiere og Hickerson höfðu átt í stormasömu sambandi með hléum frá 2018.
Sló í gegn sem barnastjarna
Panettiere hóf leiklistarferil sinn ung að árum og kom fram í sápuóperum en varð svo þekktari í kjölfar hlutverks í Remember The Titans frá árinu 2000 með Denzel Washington. Þá ljáði hún Dot rödd sína í Pixar-myndinni A Bug's Life frá 1998.
Panettiere varð síðar fræg fyrir að leika klappstýruna Claire Bennet í ofurhetjudramanu Heroes áður en hún fór með hlutverk kántrísöngkonunnar Juliette Barnes í sex þáttaröðum af Nashville.
Hún hlaut tvær Golden Globe-tilnefningar fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki í þáttunum. Meðal kvikmynda sem Panettiere hefur leikið í eru Bring It On: All Or Nothing frá 2006, Raising Helen og Scream 4 og Scream VI sem Kirby Reed.