Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að engar sjáanlegar skemmdir hafi verið á herberginu þegar lögreglumenn bar að garði. Það hafi þó verið mjög skítugt. Sökudólgarnir höfðu þegar þangað var komið sögu látið sig hverfa.
Einnig í vesturborginni var tilkynnt um mann í mjög annarlegu ástandi sem stytti sér stundir við að sparka í strætisvagnaskýli, væntanlega með nokkrum hávaða. Hann var hins vegar farinn þegar lögregla kom.
Í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði og Garðabæ var tilkynnt um innbrot í nýbyggingu. Verkfærum mun hafa verið stolið þaðan og málið er í rannsókn að sögn lögreglu.