Sex voru handteknir, grunaðir um aðild að umfangsmikilli kannabisræktun á þremur stöðum sem lögregla upprætti. Hald var lagt á tæplega 800 plöntur.
Nýlega var greint frá því að ræktun 200 kannabisplantna hefði verið stöðvuð í Reykholti í Bláskógabyggð. Lögregla gerði auk þess húsleit í sumarbústað í Kjós í lok júní þar sem virðist hafa verið ræktun um nokkurn tíma. Þá uppgötvaðist ræktun einnig á Reykjanesskaga.
Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta við fréttastofu.
„Það var ráðist í húsleitir á nokkrum stöðum og lagt hald á kannabisplöntur á þremur, tæplega 800 í heildina.“ Lögregla hefur einnig lagt hald á tilbúin fíkniefni.
Rannsakað er hvort ræktunin tengist skipulagðri brotastarfsemi.
Vísir greindi frá því að lögregla og sérsveit hefðu ráðist í handtökur á Vesturlandsvegi undir Esjunni 25. júní. Grétar segir að þar hafi tveir verið handteknir í tengslum við kannabisræktunina sem stöðvuð var í Kjós.
Þau handteknu eru öll af erlendum uppruna, bæði karlar og konur. Enginn er í gæsluvarðhaldi.