Við aðalmeðferð í stefnu Páls Steingrímssonar skipstjóra gegn RÚV og Þóru Arnórsdóttur fyrrum ritstjóra Kveiks mættu bæði ljósmyndari og fréttamaður RÚV í héraðsdóm Reykjavíkur. Myndin hér að ofan var tekin í héraðsdómi Reykjavíkur 9. apríl er réttað var í máli skipstjórans gegn RÚV og Þóru. En það birtist engin frétt á RÚV.
Tíu dögum eftir réttarhöldin endursagði RÚV frétt dönsku útgáfunnar Berlingske um tvo Pála, skipstjórann og bloggara, og þá var notuð myndin af skipstjóranum í héraðsdómi Reykjavíkur.
Byrlun og símastuldur
Engar fréttir birtust á RÚV um dómsmál Páls skipstjóra gegn ríkisfjölmiðlinum. Stefna skipstjórans byggir á að RÚV hafi átt aðkomu að byrlunar- og símamálinu. Skipstjóranum var byrlað heima hjá sér á Akureyri og fluttur daginn eftir meðvitundarlaus til Reykjavíkur. Á meðan hann var rænulaus í öndunarvél var síma hans stolið og hann afritaður. Fyrrverandi eiginkona skipstjórans játaði byrlun og stuld og kvaðst hafa afhent Þóru ritstjóra Kveiks símann til afritunar. Á RÚV átti konan fund með Þóru, Helga Seljan fréttamanni og Rakel Þorbergsdóttur þáverandi fréttastjóra.
Líkt og í dómsmálinu gegn RÚV birti ríkisfjölmiðillinn enga frétt er vísaði í gögn úr síma skipstjórans. Samstarfsmiðlar RÚV, Stundin og Kjarninn, nú Heimildin, fluttu aftur sömu fréttina, um skæruliðadeild Samherja, og birtu fréttina samtímis snemma morguns 21. maí 2021.
Arna McClure lögfræðingur gaf vitnaskýrslu fyrir dómi, en hún starfaði hjá Samherja líkt og skipstjórinn. Í samræmdri frétt Stundarinnar og Kjarnans var vísað í samskipti Páls og Örnu. Arna sagði að upplýsingar sem birtust í Stundinni og Kjarnanum gátu aðeins verið úr síma skipstjórans eða hennar eigin síma. Framburður Örnu staðfestir að gögnin sem fóru á milli Þóru og RÚV annars vegar og hins vegar Stundarinnar og Kjarnans gátu aðeins komið úr síma Páls skipstjóra.
Dómur eftir tvær vikur
Páll skipstjóri krefst miskabóta vegna aðildar RÚV og Þóru að byrlunar- og símamálinu. Lögmaður RÚV, Björn Jóhannesson, sagði aðild ríkisfjölmiðilsins ekki sannaða. Berglind Svavarsdóttir lögmaður Þóru tók undir og hafnaði málskröfum skipstjórans.
Búist er við að héraðsdómur Reykjavíkur kveði upp dóm í máli skipstjórans gegn RÚV og Þóru Arnórsdóttur fyrir miðjan mánuð.