Lögreglan á Suðurnesjum fór fram á að vitni skyldi eyða upptöku af handtöku manns sem kveikti í sér á Suðurnesjum í gær. Lögmaður telur aðgerðir lögreglu ólögmætar.
Maður var fluttur með töluverða brunaáverka á Landspítalann í gær eftir að hafa kveikt í sér. Lögreglan á Suðurnesjum hafði haft afskipti af manninum og beitti rafbyssu til þess að reyna að yfirbuga hann. Lögregla segir að hann hafi síðan kveikt í sér, eftir að hafa verið búinn að hella yfir sig bensíni.
Tilraun til að eyða sönnunargögnum
Lögregla gerði sjónarvotti að eyða myndbandi sem hann tók af aðgerð lögreglu. Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður segir líkur á að lögregla hafi með því farið út fyrir sínar valdheimildir.
„Ef lögreglan hefði talið eitthvað ólögmætt við þetta þá hefði verið að minnsta kosti rétt að biðja um afrit af myndbandinu til þess að yfirfara það eftir atvikum, eða handleggja það til þess að skoða það, frekar en að eyða því á staðnum. Þar sér maður bara ekki annað en það að tilgangurinn hafi verið að eyða sönnunargögnum.“
Málinu hefur verið vísað til Nefndar um eftirlit með lögreglu. Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segir að vegfarandi hafi verið að eyða myndefninu til þess að gæta hagsmuna einstaklingsins sem hafi verið í miklu ójafnvægi og án klæða.
Fjórir lögreglumenn tóku þátt í handtökunni og voru þeir allir með búkmyndavél við handtökuna. Nefnd um eftirlit með lögreglu fær öll þau gögn sem tengjast málinu send, þar á meðal upplýsingar úr rafbyssu og upptökur úr búkmyndavél.
Gunnar Ingi segir eðlilegast að málið verði rannsakað frekar.
„Þetta er að minnsta kosti eitthvað sem væri eðlilegt að nefnd um eftilit með störfum lögreglu skoðaði og jafnvel hérðassaksóknari, sem fer með rannsókn mála sem beinast að starfsháttum lögreglu.“