Bandaríska stríðsmálaráðherrans Petes Hegseth bíður þungt spurningaflóð um stöðu stríðsins gegn Íran þegar hann mætir til yfirheyrslu hjá hermálanefnd fulltrúadeildar þingsins í dag.
Umræðuefnið er krafa Donalds Trump forseta um einnar og hálfrar billjónar dala framlag til hernaðarmála. Dan Caine, yfirmaður herforingjaráðsins, kemur einnig fyrir nefndina. Hegseth hefur ekki mætt nefndarmönnum frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran 28. febrúar.
Þingmenn beggja flokka hafa lýst megnri óánægju með þær upplýsingar sem þeim hafa verið veittar um framgang stríðsins og því má búast við fjörugum skoðanaskiptum í dag.
Trump segir Íran hernaðarlega búið að vera. Hann sagði þetta við Karl III Bretakonung og aðra gesti á hátíðarkvöldverði í Hvíta húsinu. Trump impraði ekki á Íransstríðinu við Karl fyrr í konunglegri heimsókn hans til Washington.
Hann bætti við að Karli væri jafnvel meira í mun en honum sjálfum að Íranar kæmu sér ekki upp kjarnorkuvopnum. Tilefni heimsóknar konungs er að 4. júlí verða 250 ár liðin frá því að fulltrúar þrettán nýlendna lýstu yfir sjálfstæði frá breska heimsveldinu.