Líkamsleifar sem taldar eru vera af fimm ungbörnum fundust í íbúð pars í bænum Orange í Provence-héraði í suðausturhluta Frakklands. Samkvæmt frétt Reuters hafa saksóknarar hafa hafið rannsókn á málinu vegna gruns um manndráp.
Líkamsleifarnar fundust á mánudag, degi eftir að 32 ára kona fæddi heilbrigðan dreng á heimili sínu áður en hún var flutt á sjúkrahús.
Fann líkamsleifar í pappakassa
Samkvæmt saksóknurum varð 32 ára sambýlismaður hennar miður sín þegar hann komst mjög seint að því að sambýliskona hans væri ófrísk. Hann fór þá að leita á heimilinu og fann það sem virtust vera líkamsleifar manneskju í pappakassa.
Maðurinn tilkynnti sjúkrahúsinu, þar sem konan var til meðferðar, um fundinn og sjúkrahúsið gerði saksóknaraembætti Frakklands viðvart. Maðurinn hefur sagt lögreglu að hann hafi ekki vitað af hugsanlegum fyrri meðgöngum sambýliskonu sinnar.
Réttarmeinafræðingur telur, samkvæmt fyrstu niðurstöðum, að um sé að ræða líkamsleifar fimm nýbura. Fyrir liggur að framkvæma krufningu á líkamsleifunum sem fundust og framkvæma frekari rannsóknir til að staðfesta uppruna þeirra.
Parið handtekið í dag
AFP greinir frá því að parið hafi verið handtekið í dag vegna rannsóknarinnar. Konan er enn á sjúkrahúsi og hefur ekki verið yfirheyrð af lögreglu.
Parið á tvö önnur börn sem eru átta og níu ára gömul. Þau hafa verið vistuð hjá ættingjum á meðan rannsókn stendur yfir og nýburinn settur í umsjá barnaverndaryfirvalda.