Viðbyggingar við fjóra verknámsskóla til stækkunar iðndeilda hafa tafist. Vorið 2023 kynnti Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, áform um að byggja 12-16 þúsund fermetra undir verknám um land allt. Byrjað var við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en verknámsskólar á landsbyggðinni bíða enn. Til þess að liðka fyrir framkvæmdum og flýta uppbyggingu hafa Skagfirðingar og skólastjórnendur FNV rætt við ráðuneytið um að þeir haldi utan um framkvæmdina.
„Við hjá sveitarfélaginu höfum boðið það fram til að flýta málum að við gætum farið þá leið, það er heimild fyrir því þegar það er samstarfsverkefni ríkis og sveitarfélaga, að sveitarfélög megi halda utan um framkvæmdina,“ segir Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.
Framkvæmdir á landsbyggð hafa tafist
Upphaflega stóð til að hefja framkvæmdir á Sauðárkróki í vetur en það hefur tafist. Sömu sögu er að segja af Verkmenntaskólanum á Akureyri, Menntaskólanum á Ísafirði og Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Árlega er mörg hundruð nemendum vísað frá verknámi og kennt er í tímabundnum úrræðum, geymslum og færanlegum kennslustofum.
Skólameistari Fjölbrautaskólans og sveitarstjóri Skagafjarðar hafa fundað tvívegis með Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um málefni FNV.
„Við höfum verið í mjög jákvæðu og uppbyggilegu samstarfi við ráðuneytið og samtali og ég á von á því að það verði góðar fréttir sem komi út úr því innan skamms. Ég fann bara fyrir virkilega miklum áhuga hjá henni að flýta þessu eins og mest væri hægt að verða við,“ segir Sigfús.
Þegar verknámshúsið við FNV var stækkað árið 2010 hélt sveitarfélagið einnig utan um framkvæmdina fyrir hönd ríkisins og sveitarfélagsins með góðum árangri.