Leyniviðtöl á RÚV og uppstokkun boðuð

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Vinnustofa starfsfólks RÚV var haldin 9. júní síðastliðinn í tengslum við stefnumótunarvinnu ríkisfjölmiðilsins. Í aðdraganda vinnustofunnar voru tekin viðtöl við stjórnarmenn og starfsfólk RÚV. Í fundargerð stjórnar RÚV segir að nafnleynd sé viðhöfð um við hverja var talað og hvað þeir sögðu:
Öll viðtöl séu með nafnleynd og fái stjórnendur engar upplýsingar um hver segi hvað. Viðtölin séu mikilvægt innlegg við að móta stefnu til framtíðar.
Samkvæmt fundargerðinni leiddu viðtölin, sem ráðgjafarnir Ragnar Már Vilhjálmsson og Guðjón Guðmundsson stjórnuðu, til þess að ákveðin „meginþemu“ voru skilgreind sem viðfangsefni vinnustofu starfsfólks.
Í fundargerðinni, sem er frá 27. maí, er gert ráð fyrir aðkomu almennings að stefnumótun RÚV. Segir að „opin netkönnun [verði] á ruv.is til að þess að opna stefnumótunarvinnuna gagnvart almenningi." Enn sem komið er hefur ekkert orðið af boðuðu samstarfi við almenning. Traust almennings á íslenskum fjölmiðlum fer hríðfallandi.
Tilfallandi greindi í síðasta mánuði frá niðurstöðu nýrrar úttektar OECD er sýnir að traust til fjölmiðla hér á landi fellur um ellefu prósentustig milli áranna 2023 til 2025, úr 61 prósenti í 50 prósent. Í OECD skýrslunni segir að traust Íslendinga vaxi á öðrum opinberum aðilum t.d. stjórnvöldum, löggæslu og stjórnmálaflokkum. Hrap í tiltrú almennings til fjölmiðla, á sama tíma og traust vex almennt í samfélaginu, er til marks um að fjölmiðlar séu í úlfakreppu. Fátt er um fréttir í íslenskum fjölmiðlum af OECD-skýrslunni. Blaðamannafélag Íslands steinþegir.
Í fundargerð RÚV um framtíð ríkisfjölmiðilsins er stjórnarformaðurinn, Stefán Jón Hafstein, ómyrkur í máli:
Formaður stjórnar var á þeirri skoðun að mögulega þurfti að fara í afgerandi forgangsröðun og umbreytingarferli til næstu fimm ára.
Orð Stefáns Jóns vera vart skilin á annan veg en þann að RÚV standi á krossgötum. Uppstokkun á starfseminni sé þrautalending.
Fyrir utan almenna stefnumótunarvinnu stendur yfir sérstök skoðun á störfum fréttamanna og dagskrárgerðafólks með sérstaka áherslu á ritstjórnarferli og gæði. Frétta- og dagskrárgerðamenn RÚV ganga meira og minna sjálfala og hafa tileinkað sér vinnubrögð aktívista á kostnað faglegra sjónarmiða. Fyrir rúmu ári fékk fréttamaður RÚV verðlaun fyrir akívistamál sem „var síðasti naglinn í líkkistu ríkisstjórnar Framsóknar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna.“ Metnaður fréttamanna RÚV er að valda óskunda, láta reiðibylgjur rísa. Fréttamennirnir á Efstaleiti eru á launum frá almenningi til að segja fréttir. En þeir fá verðlaun frá starfsfélögum fyrir að valda stjórnarkreppu.
Stefán Jón stjórnarformaður leiðir athugun stjórnar á vinnulagi ritstjórna RÚV og gerði grein fyrir úttektinni á stjórnarfundi í lok apríl. Orð Stefáns Jóns um nauðsyn forgangsröðunar og umbreytinga á starfseminni, sem féllu á maí-fundi stjórnar RÚV, endurspegla ekki síður, og jafnvel enn frekar, þau málsefni er varða frétta- og dagskrárgerðamenn.