Sérstakri forkeppni í A-flokki gæðinga lauk í dag á Landsmóti hestamanna í Skagafirði.
Í efsta sæti eftir keppnina er knapinn Þorgeir Ólafsson á hestinum Leyni frá Garðshorni á Þelamörk. Þeir keppa fyrir hestamannafélagið Jökul og hlutu einkunnina 8,93.
Í öðru sæti á eftir Þorgeiri og Leyni með einkunnina 8,92 er knapinn Hans Þór Hilmarsson á hestinum Sindra frá Hjarðartúni sem keppir á vegum hestamannafélagsins Geysis.
Í þriðja sætinu er Ásmundur Ernir Snorrason með einkunnina 8,90 á Aski frá Holtsmúla 1 sem keppir einnig fyrir Geysi.
Lágmarkseinkunn til að ná áfram í milliriðla, eða í hóp efstu 30 knapa, var 8,63.
Alls kepptu 104 pör í forkeppni A-flokka gæðinga í dag.