Maður á áttræðisaldri var úrskurðaður látinn á tjaldsvæði í uppsveitum Árnessýslu í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.
Tilkynning barst um hádegisbilið í gær um tvo meðvitundarlausa einstaklinga í tjaldi. Lögregla og sjúkralið voru send á vettvang.
„Þrátt fyrir endurlífgunartilraunir var karlmaður á áttræðisaldri úrskurðaður látinn á vettvangi. Kona á sjötugsaldri var flutt á gjörgæsludeild þungt haldin,“ segir í tilkynningunni.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins sem er rannsakað sem slys. Meðal þess sem er til skoðunar er hvort um gaseitrun hafi verið að ræða.
Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við upplýsingar frá lögreglu sem sagði í upphaflegri tilkynningu að atvikið hefði verið í Biskupstungum.