Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar. Sýningin er frumsamin og um tíu ára gömul.
„Litaland er saga um litina, grunnlitina, gulan, bláan og rauðan og þetta er saga sem á vel við í dag,“ segir Sigsteinn Sigurbergsson, leikstjóri sýningarinnar.
Bjarki Sigurðsson fréttamaður ræddi við Sigstein og Þórunni Lárusdóttur leikstjóra í kvöldfréttum Sýnar. Þórunn sagði ýmisleg ævintýri eiga sér stað í Litalandi sem komi á óvart og ekki. Hún segir leikritið eiga vel við í dag því það taki á áskorunum sem komi við „litablöndun“.
Þau segja stemninguna hafa verið frábæra á fyrsta sýningardegi og veðrið leikið við þau og þurrt meðan á sýningunni stóð.
Sigsteinn er í fyrsta sinn í tuttugu ára sögu leikhópsins ekki að leika í sýningunni heldur að leikstýra sýningunni. Hann segir skrítið að vera í þessari stöðu núna og að hann sakni þess en hann ætli að nýta tækifærið og rifja upp gamla takta í öðrum verkefnum á meðan.