Péter Magyar forsætisráðherra Ungverjalands og ný ríkisstjórn hans hefur lagt fram frumvarp um breytingu á stjórnarskrá sem takmarka myndi embættissetu forsætisráðherra við átta ár. Slík breyting kæmi í veg fyrir að fyrrverandi forsætisráðherra Viktor Orbán kæmist aftur til valda. Aðeins er rétt rúm vika síðan ríkisstjórnin tók við völdum en meðal kosningaloforða Magyars var að koma á slíkum takmörkunum.
Frumvarpsdrögin virðast til þess gerð að koma í veg fyrir að Orbán komist aftur til valda en hann gegndi embætti forsætisráðherra í samtals 20 ár. Í drögunum segir að sá sem setið hefur á stóli forsætisráðherra í samtals að minnsta kosti átta ár, að hléum meðtöldum, getur ekki verið kjörinn forsætisráðherra. Jafnframt segir í drögunum að takmörkun á fjölda kjörtímabila sé nauðsynleg til að koma aftur á lög og reglu.
Nýrri ríkisstjórn Magyars er mikið í mun að geta sótt aftur í sjóði Evrópusambandsins sem voru frystir í valdatíð Orbáns. Til þess eru meðal annars í frumvarpsdrögunum ákvæði sem myndu leyfa ríkisstjórninni að leysa upp einkastofnanir sem sjá um rekstur fjölda háskóla og hugveita í Ungverjalandi.
Ríkisstjórn Orbáns veitti stjórnum þessa stofnanna fulla stjórn yfir eignum þeirra en í þeim sitja margir dyggir fylgismenn Orbáns. Með því að leysa upp stofnanirnar mætti endurheimta eignirnar sem samkvæmt frumvarpinu eru þjóðareignir.
Ræða á frumvarpið þegar ungverska þingið kemur saman í næstu viku.