Íslensku söngkonunni Laufeyju bregður fyrir í nýjasta þætti Simpsons-fjölskyldunnar (The Simpsons), tvöfalda þættinum The Extreme Makover: Homer Edition. Það er viðeigandi að þátturinn var frumsýndur á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga, 17. júní.
Það er rík hefð fyrir því að frægir fari með gestahlutverk í Simpsons og dæmin eiginlega svo mörg að það tekur því ekki að þylja einhver upp. Stundum eru frægir í hlutverkum annarra persóna en eflaust er algengara að þeir leiki útgáfu af sjálfum sér, líkt og Laufey. Leikarinn Jon Hamm fer einmitt líka með gestahlutverk sem hann sjálfur í nýjasta þættinum.
„Skemmtilegt lag á kaldhæðinn máta“
The Extreme Makeover: Homer Edition er eins konar skopstæling á Jókermyndum Todd Phillips. Tónlist er afar fyrirferðarmikil í þeim kvikmyndum og sérstaklega þeirri seinni, Joker: Folie à Deux. Þarna er önnur Íslandstenging en Hildur Guðnadóttir samdi tónlist Jókermyndanna og hlaut til að mynda Óskarsverðlaun fyrir fyrri kvikmyndina frá 2019.
„Þátturinn fylgir Marge. Þegar hún kemst að því að Homer skildi börnin eftir ein heima með ekkert nema dyrabjöllumyndavél til að fylgjast með þeim, á meðan þau hjónin eru á stefnumóti, fer hana að dagdreyma um hvernig lífið gæti verið með öðrum Hómerum,“ segir um þáttinn á IMDb. Þetta rímar ágætlega við Jókermyndirnar, þar sem mörkin milli hins raunverulega og ímyndaða eru óljós.
Seinni Jókermyndin er eins konar söngleikur með Jókernum og Harley Quinn. Í einni senu af Extreme Makeover: Homer Edition er stælað söngatriðin í myndinni en það er Laufey sem syngur undir.
„Það kann að vera vegna þess að ég var að hrynja niður 39 þrep, en ég heyri hægt og drungalegt lag hefjast sem er vanalega hratt og skemmtilegt,“ segir Hómer í upphafi lagsins sem gerir grín að þessari nýlegu Hollywood-klisju.
„Skemmtilegt lag á kaldhæðinn máta,“ syngur síðan Laufey sem tekur við af Hómer, þó upp á ensku (e. happy song done ironic).
Söngkonan er ekki fyrsti Íslendingurinn til að birtast í Simpsons-fjölskyldunni. Í þættinum The Saga of Carl frá 2013 héldu Hómer, Marge og krakkarnir til Íslands til að hjálpa Carli að hafi uppi á fjölskyldu sinni sem er héðan. Í þeim þætti komu meðlimir Sigur Rósar fram og tóku þeir meðal annars lagið. Þá brá Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrverandi forsætisráðherra einnig fyrir.
En þetta er heldur ekki í fyrsta sinn sem Laufey bregður fyrir í heimsþekktu afþreyingarefni. Hún birtist nýverið í tölvuleiknum Fortnite sem er einn sá vinsælasti í heiminum í dag.