Víðast hvar á Vesturlandi stendur nú yfir undirbúningur fyrir sólmyrkvann sem ganga mun yfir Ísland þann 12. ágúst næstkomandi, nú þegar rétt rúmur mánuður er til stefnu. Greint var frá því í liðinni viku að margvíslegar aðgerðir væru í undirbúningi á Vestfjörðum til að stemma stigu við mannfjöldanum sem þangað stefnir.
Landverðir við Snæfellsjökulsþjóðgarð hafa undanfarið ár staðið í álíka ströngu við að búa verndarsvæðið undir ágang þess fjölda sem búist er við að náttúrufyrirbrigðið laði að svæðinu, þó að fólk sé hvatt til þess að njóta myrkvans annars staðar frá.
„Við höfum verið í meira en ár að skipuleggja þetta og ákveða hversu mörgum er raunhæft að við gætum tekið á móti,“ segir Una Sóley Stefánsdóttir, yfirlandvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði. „Við búum okkur undir það versta en vonum auðvitað það besta.“
Árlega sækja um 500.000 manns Snæfellsjökulsþjóðgarð heim og þegar sumarannríkið nær hápunkti í ágústmánuði geta heimsóknir numið 3.000 til 3.500 á hverjum degi. Undir slíkum kringumstæðum eru átta landverðir á vakt.
Þann dag sem sólmyrkvinn verður er aftur á móti búist við að gestir verði í hið minnsta þrefalt fleiri en á venjulegum háannatíma, eða allt að 10.000 manns.
Sökum þessa verða ákveðin svæði sérstaklega opnuð undir bílastæði og einstefna mun gilda um nesið vestanvert, auk þess sem vonast er til að 23 starfsmenn þjóðgarðsins verði á vaktinni daginn sem sólmyrkvinn verður.
Við Öndverðarnes verður síðan komið upp bílastæði og rútur munu ferja ferðamenn út eftir, þar sem sólmyrkvinn verður sýnilegur heilum sjö sekúndum lengur en frá Arnarstapa.