Mjög hefur dregið úr neyslugleði landsmanna síðustu mánuði, miðað við tölur Seðlabankans um kortanotkun innanlands og utan.
Nýjustu tölur bankans voru birtar í dag og ná yfir kortanotkun í síðasta mánuði. Dregið hefur úr kortanotkun vítt og breitt, bæði milli mánaða og síðasta árið.
Sama hvar litið er þá strauja landsmenn kort sín minna en áður. Heilt yfir var kortaveltan 4,8 prósentum minni í apríl en í mars og 2,4 prósentum minni en í apríl í fyrra.
Samdrátturinn verður sérstaklega áberandi þegar litið er til kreditkorta. Landsmenn notuðu þau 7,2 prósentum minna í apríl en í mars og 2,4 prósentum minna en í apríl í fyrra. Samdrátturinn innanlands (8,1 prósent) er mun meiri en erlendis (3,9 prósent).
Debetkortaneyslan minnkaði minna en minnkaði þó, um 1,4 prósent milli mánaða og 2,5 prósent milli ára.
Í frétt Viðskiptablaðsins í dag um minnkandi kortaveltu segir að þetta séu skýr merki um að einkaneysla sé að missa kraft. Blaðið vísar til markaðsaðila sem segja að leita þurfi aftur til áranna í covid-faraldrinum til að finna sambærilegan kulda í kortaveltu. Viðskiptablaðið segir að samdrátturinn sé ekki aðeins bundinn við apríl heldur sýni kortavelta í mars og apríl að neyslan kólni hratt.
Rætt verður við Unu Jónsdóttur, forstöðumann Hagfræðideildar Landsbankans, í hádegisfréttum um stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans á morgun og minnkandi kortaveltu.