Landskjörstjórn hefur opnað kosningavef um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem fram fer 29. ágúst.
Í tilkynningu frá landskjörstjórn segir að hún hafi það hlutverk að standa fyrir víðtækri kjynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði og hafi því opnað vefinn kosning.is.
„Þar eru veittar hlutlausar upplýsingar um málefnið þannig að kjósandi geti tekið upplýsta afstöðu til þeirrar spurningar sem borin er fram. Á vefnum kosning.is er auk þess að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar um framkvæmd kosninga,“ segir í tilkynningu.
Þá verður kynningarbæklingi dreift á öll heimili í ágúst.