Maðurinn var sóttur á flugvöllinn í Heimaey og var þyrlan komin þangað um klukkan hálf ellefu, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan hafi svo lent við Landspítalann í Fossvogi um klukkan 23:40 þar sem maðurinn hlaut aðhlynningu á bráðamóttöku. Ásgeir hafði ekki upplýsingar um aðdraganda slyssins.