Áhöfn um borð í flugvél Landhelgisgæslunnar kallaði ítrekað til áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, í gær – en fékk engin svör. Gæslan var í eftirlitsflugi yfir hafsvæðinu. Vísir greindi fyrst frá.
Bandero-skipið hefur verið í íslenskri efnahagslögsögu í þeim yfirlýsta tilgangi að fylgjast með og stöðva hvalveiðar. Samtökin segja í færslu á Facebook-reikningi sínum í gær að Landhelgisgæslan hafi haft afskipti af þeim.
„Þau sáu okkur“
Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, segir það daglegt brauð að fljúga yfir skip og tala við þau í gegnum rás 16, sem skip eigi öllu jafna að hafa talstöðvar sínar stilltar á. Skipum beri skylda til þess að svara kalli Gæslunnar.
Spurður hvers vegna áhöfn Bandero hafi ekki svarað kveðst Magnús ekkert geta fullyrt um það. Það sé óalgengt að skip svari ekki, sérstaklega ekki þegar þau viti að Gæslan sé nærri.
„Þau sáu okkur og við sáum þau,“ segir Magnús.
Snýst fyrst og fremst um öryggi sjófarenda
Hann segir Gæsluna hafa gert ítrekaðar tilraunir til að ná sambandi án árangurs. Að lokum hafi þeir yfirgefið svæðið án þess að aðhafast neitt frekar. Spurður hvort einhver viðurlög séu við því að svara ekki kalli sem þessu segir Magnús það ekki þess eðlis.
„Við erum fyrst og fremst að pæla í öryggi sjófarenda.“
Það sé skýrt í alþjóðasiglingarlögum að skip eigi að vera með stillt á rás 16 og svara köllum Landhelgisgæslunnar í gegnum þau. Bandero hafi áður svarað slíku kalli og almennt fylgt tilmælum.
„Þannig ég ætla bara að gefa mér að þetta hafi verið eitthvað tilfallandi,“ segir Magnús.
Hann segir Landhelgisgæsluna halda áfram að fylgjast með skipinu líkt og öðrum. Aðspurður segir hann Hval hf. ekki hafa kvartað yfir Bandero við Gæsluna.