Wes Streeting, fráfarandi heilbrigðisráðherra, og Andy Burnham, borgarstjóri Manchester, eru meðal þeirra sem hafa kallað eftir því að Starmer láti gott heita eftir afhroð Verkamannaflokksins í kosningum á dögunum. Flokkurinn tapaði um 1.400 sætum á landsvísu.
Lammy sagði hins vegar í samtali við Sky News að Starmer hefði ekki í hyggju að tilkynna það hvenær hann ætlaði að víkja, eins og sumir hafa þrýst á.
„Leyfið mér að vera afdráttarlaus; Keir Starmer er harðgerðasta manneskja sem ég þekki. Ég talaði tvisvar við hann í gær. Hann hefur sterkan karakter, er reyndur í baráttu. Það verður ekki lögð fram nein tímatafla.“
Lammy benti á að leiðtogakjörið hefði ekki verið virkjað en til þess þarf áskorandi að afla sér stuðnings 81 þingmanns. Ráðherrann sagði Starmer einbeittan í því að vinna fyrir þjóðina. Þá sagði hann innanflokksátök Verkamannaflokknum ekki til framdráttar.
„Ég ætla ekki að sykurhúða þetta; mér finnst Verkamannaflokkurinn hafa skorað stórkostlegt sjálfsmark eftir að niðurstöður kosninganna lágu fyrir,“ sagði Lammy. Hann sagði flokkinn þurfa að standa saman og axla þá ábyrgð að stjórna landinu.