Læknirinn Salvador Plasencia var í desember dæmdur í fangelsi fyrir að selja leikaranum Matthew Perry ketamín, en leikarinn fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í október árið 2023. Leikarinn sló í gegn í vinsælu þáttunum Friends á tíunda áratug síðustu aldar og hafði lengi glímt við fíkn. Réttarkrufning leiddi í ljós að Perry hafði dáið vegna neyslu ketamíns.
Plasencia var þó ekki dæmdur fyrir að selja leikaranum skammtinn sem dró hann til bana, en dómari taldi þó að læknirinn, ásamt öðrum, hefði nýtt sér fíkn Perry til að hagnast. Plasencia gekkst við því að hafa vitað um fíknisjúkdóm leikarans en í skilaboðum sem hann sendi öðrum lækni kallaði hann leikarann fábjána.
„Ég velti fyrir mér hversu mikið þessi fábjáni er tilbúinn að borga. Við skulum komast að því.“
Nú hefur Plasencia áfrýjað málinu en hann var dæmdur í 30 mánaða fangelsi. Nú vill hann meina að refsing hans hafi verið of þung þar sem það var metið honum til refsiþyngingar að hafa nýtt sér trúnaðarstöðuna sem hann naut sem læknir. Vill Plasencia meina að hann hafi ekki komið fram sem læknir í samskiptum sínum við leikarann:
„Þess í stað var hann ekkert annað en dópsali,“ segir í áfrýjuninni þar sem því er haldið fram að með því að koma fram sem óbreyttur dópsali hafi læknirinn ekki verið að misnota trúnaðarstöðu sína enda hafi leikarinn ekki leitað til hans sem læknis heldur sem dópsala sem svo óheppilega vildi til að var einnig læknir.