Hvalfjarðargöngum var lokað um hríð í kvöld vegna bíls sem kviknaði í. Búið er að ráða niðurlögum eldsins og opna fyrir umferð um göngin. Engin slys urðu á fólki vegna eldsins.
Bíllinn var staddur Akranesmegin í Hvalfjarðargöngunum og þar af leiðandi á starfssvæði Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Jens Heiðar Ragnarsson slökkviliðsstjóri segir að útkall vegna eldsins hafi borist klukkan 19:06.
„Við sendum dælubíl í verkefnið en þeir náðu nú að slökkva eldinn, þeir sem voru ofan í göngunum. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig það var en þegar við komum á svæðið var búið að slökkva eldinn.“ segir Jens. Hann segir að engin hætta hafi verið á ferð.
Slökkvilið er enn að störfum á vettvangi við að þrífa svæðið og koma bílnum út úr göngunum.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk einnig útkall vegna eldsins þó að hann væri Akranesmegin í göngunum. Guðjón Ingason varðstjóri segir að dælubíll og sjúkrabíll hafi verið sendir af stað samkvæmt viðbragðsáætlun. Báðir bílar voru afturkallaðir á leið á vettvang eftir að í ljós kom að búið væri að slökkva eldinn.