Í spilara hér fyrir neðan má sjá stikluna fyrir hátíðina:
Í fréttatilkynningu segir:
„Kvikmyndahátíðin FILMA fer fram dagana 26.–28. maí næstkomandi í Bíó Paradís. Þrjú kvöld í röð geta áhorfendur séð nýjustu verk 37 nemenda Kvikmyndalistadeildar Listaháskóli Íslands á stóra tjaldinu í Bíó Paradís.
FILMA býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast nýrri rödd í íslenskri kvikmyndagerð og sjá hvernig nemendur vinna með frásögn, form og kvikmyndatækni á persónulegan og frumlegan hátt.
Á dagskrá eru lokaverkefni 1. og 2. árs nema, en lokakvöldið er helgað 3. árs útskriftarnemum og útskriftarverkum þeirra. Frítt er inn og öll hjartanlega velkomin.“
Hér má finna nánari upplýsingar um hátíðina.