Anna Kristjánsdóttir, pistlahöfundur og þekktasti Tenerife-íbúi þjóðarinnar, flytur til Íslands í dag eftir sjö ára búsetu á eyjunni fögru.
Anna hefur verið dugleg að halda fylgjendum sínum á Facebook upplýstum um lífið á Tenerife og hafa margir pistlar hennar slegið í gegn.
„Í dag er dagur brottfarar. Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife og reikna fastlega með að ég eigi eftir að koma hingað aftur og aftur áður en yfir lýkur enda er Tenerife eins og Paradís á jörðu. En það er margt sem ég þarf að gera áður en yfir lýkur og því er þetta nóg að sinni,“ segir Anna í pistli sem hún birti í morgun.
Anna segir að undanfarin sjö ár hafi verið yndislegur tími.
„Allt það fólk sem ég kynntist hér á eyjunni og sem ég naut þess að vera með, fagnaðarstundir sem og sorgarstundir. Sum okkar fórum saman í ferðir um eyjuna, héldum afmæli saman, en við tókum einnig þátt í sorgarstundum,” segir Anna og minnist góðra vina.
Pistil Önnu má lesa í heild hér að neðan: